Gegnsætt. Einfalt. Þægilegt.

Tannrétting með skinnum er vissulega frábrugðin hefðbundnum tannréttingatækjum og hefur jafnframt talsverða kosti í för með sér. Gegnsætt, einfalt og þægilegt eru góð orð til að lýsa skinnumeðferð. Meðferðaraðilar sem hafa gengist undir tannréttingu með báðum útfærslum geta klárlega staðfest það. Síðustu ár hefur notkun tannréttingaskinna stóraukist og sumir íslenskir tannlæknar/sérfræðingar bjóða upp á þennan meðferðarmöguleika.

Hjá Ordoline er nýsköpun í fyrirrúmi í allri starfsemi fyrirtækisins. Með því að sameina sérfræðiþekkingu og háþróaða tækni býður Ordoline upp á nákvæmari og fyrirsjáanlegri tannréttingarmeðferð.

Sérfræðingar Ordoline nota fullkomin CAD-kerfi til að hanna sérsniðnar meðferðaráætlanir.

Einfalt og aðgengilegt

Það er tannlæknum/sérfræðingum algjörlega að kostnaðarlausu að gerast notandi að Ordoline tannréttingaskinnukerfinu. Í samvinnu við Ordoline bjóðum við uppá ýmis konar námskeið og endurmenntun.

Gæðastjórnun

Miklar gæðakröfur eru gerðar til framleiðslu á Ordoline skinnum og öflugu gæðaeftirliti framfylgt þar sem framleiðslan á sér stað.

Góð þjónusta innan handar

Það er mjög aðgengilegt að fá aðstoð og svör við spurningum í gegnum tölvupóst samskipti eða með því að hringja í þjónustuver/tengilið.

Sérsniðin hönnun

Allar þær aðferðir og greiningartæki sem notuð eru í framleiðslu á gómunum eru byggð á persónulegri reynslu samstarfsaðila og rannsóknum, auk framtaks þeirra tannlækna/sérfræðinga sem vinna með okkur. Stöðugt er verið að greina hvar hægt er að gera betur, læra af mistökum, og gera svo enn betur. Þannig er haldið áfram að bæta framleiðsluna skref fyrir skref með ennþá markvissari þróun á Ordoline skinnumeðferðum.

Eiginleikar tannréttingaskinnanna frá Ordoline

.030″ Polyurethane

Skinnurnar eru gerðar úr hitaþjálu pólýúretan sem þrýstir á tanngóminn til að ná fram æskilegri hliðrun tanna.

Stain & Crack Resistant Material

Efnið í gómunum rispast hvorki né blettast.

Hand-checked for Quality

Handvirkt gæðaeftirlit tryggir þá réttingu sem óskað er eftir í hvert skipti.

Sveigjanleiki og yfirsýn allt frá upphafi til enda

Stafræna vinnuferlið í kringum Ordoline skinnumeðferð er hannað til að aðstoða fagaðilann og veita honum ákveðið frelsi til að vinna eftir eigin höfði. Flest stafræn munnskannakerfi eru viðurkennd í Ordoline kerfinu. Markmiðið er að leiða ferlið áfram skref fyrir skref að vel útfærðri meðferðaráætlun með óskir sjúklings og útfærslur tannlæknis/sérfræðings í forsæti.

Heimildir: “The effect of gingival-margin design on the retention of thermoformed aligners” by Daniel P. Cowley, James Mah, and Brendan O’Toole in the Journal of Clinical Orthodontics: JCO 11/2012; 46(11):697-702.

Tannlæknarnir Aníta Rut Axelsdóttir og Telma Borgþórsdóttir hafa góða umsögn og reynslu af ClearCorrect skinnumeðferðum.

Aníta Rut hefur ekki bara góða reynslu af ClearCorrect skinnumeðferð fyrir sjúklinga sína heldur gekk hún sjálf í gegn um meðferðina vegna vægrar tannskekkju í efri og neðri góm.

„Ég myndi hiklaust mæla með ClearCorrect, þetta jók sjálfstraustið mitt til muna að vera með alveg beinar tennur, sérstaklega þar sem ég er að vinna við þetta.“